Fibblin í Bolungarvík!
Klukkan
07.12.2008 21:21:38 / fibblin

Byrja aftur ?

Jæja stelpur, nú er það bara já og við gerum eitthvað við þessa síðu af viti eða nei og látum hana bara vera.
Byrja aftur ? :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 17:18:19 / berglind

Byrjaðar aftur :D

Fibblin is back !


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 20:33:14 / berglind

ATH FIBBL :d

    hey ég náði að setja inn myndir, það tók svona 20 sek og var ekkert mál þannig var að pæla hvort við ættum kannski að hafa þessa bara? Myndirnar eru í myndasöfn bara ´hérna í aðalvalmynd ;) og þangað fara öll albúm, svona eins og á bloggar.is bara miklu fljótari að hlaðast :) en annars er ég alveg jafn hlynnt því að hafa 123 en vildi bara benda á þetta ef það eru einhverjar sem nenna ekki að borga það að hafa síðu :)

Kveðja, Berglind

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 15:18:45 / ebba

--

hæhæ :)
stelpur var að pæla.. því að það vilja ekki allar 123 síðu en vilja flestar samt vera með síðu, eigum við þá ekki bara að halda áfram hér ? :S þó að við kunnum ekki alveg á kerfið :D meina við þurfum nú einhverja síðu til að setja inn myndir og skrifa um okkar daga er það ekki ;)
en allavega, í dag byrjuðu samrændu prófin með íslenskuprófi (y) mér gekk bara ágætlega, eða segi það um öll próf :D hlustunin var reyndar aaalgjört kjaftæði ! svo er það bara enska á morgun  og náttúrufræði á föstudaginn.. jeeee gangi mér vel í því :D en hérna já stelpur segið ykkar skoðun :)

-ebbs !


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 15:42:45 / fibblin

sdas

Við höfum fært okkur yfir á www.123.is/fibblin ;)

-fibblin ! <3

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 22:29:15 / ingibjörg

...

[haffi haff-the wiggle wiggle song]

hæhæ .. okei langt síðan að ég bloggaði :) hef bara ekki tíma og nenni því ekki :)

En já það er sko ekkert að frétta af mér :)
Helgin var bara gjeggjuð á föstudeginum fór ég bara í skólan og ég og Monika vorum að kenna 1 og 2 bekk :) geðveikt gamann hehe ;P .. síðan eftir skóla fór ég heim og síðan á ísafjörð með viktoriu að sækja Sólveigu :) eftir það fór ég heim og Hanna kom til mín og við fórum bara að hafa okkur til fyrir palla óskar;) og síðan komu viktoria,Berglind,Arna og Sólveig og síðan fórum við á ísafjörð í partý .. eftir það kom Guðbjörn að sækja okkur og skutlaði okkur á balliið .. og það var dansað og dansað :D .. geðveikt stuð .. eftir ballið fórum við heim til Sigríðar og vorum þar í 40 mín eða e-ð .. síðan fór ég bara heim að sofa ..vaknaði og man ekki hvað ég gerði :) Hanna kom síðan til mín og við fórum með Kristínu og Moniku útá sjoppu fórum síðan heim og síðan inneftir heim til Bjarna .. og vorum þar bara ;) Hanna fór síðan um 2 leitið ? og ég,Viktoria,Elsa og Sólveig gistum heima hjá Bjarna .. síðan voknuðu allir eiginlega á sama tíma , fengum okkur að borða og fórum síðan út í vík .. síðan gerði ég bara ekkert .. Elsa , Maggi og kristján komu síðan um kvöldið .. en þetta var ekki skemmtilegt kvöld :) .. síðan í mrg vaknaði ég og fór í skólan síðan kom ég heim og fór að sofa .. þegar ég vaknaði var Elsa komin og viktoria kom og við fórum niður í búð og síðan fórum við Elsa heim og horfðum á neibó :) .. síðan fór ég á björgófund  og fórum á fund.. og er bara komin heim að gera ekki neitt .. ætla bara bráðum að fara að sofa ;) .. þannig þetta er ekki meira í kvöl d;P ..

-Ingibjörg ..



» 5 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 22:23:49 / berglind

mmm, aaaa, mmm, aaa... :D

Jæja, komið að mér að blogga ? Allavega langaði mig það ;)
Þessi helgi er búin að vera stutt og þá eitt 8 tímum í sjálfstyrkinganámskeið sem var bara mjög fínt og gaman bara ;D Ég er samt sem áður dauðþreytt eftir helgina því á föstudaginn fer ég að sofa klukkan hálf 4, og vakna klukkan hálf 10 (Y) Fer á námskeiðið klukkan 3 og er til hálf 8, horfi á Sweeney Todd og kem heim um hálf 2-2 og sofna um leið og þarf svo að vakna klukkan 10 því ég fór aftur á námskeið klukkan 11 ! Fjúff segi ég bara þar sem ég er nú ekki mikill nátthrafn :D
Á námskeiðinu í dag var ég svo að tala við Gerði og minnir hún mig þá á að Björgvin ætli að taka einhverjar reiknisbækur til að sjá hvernig okkur gengur og ég langt á eftir vikuskammti en þannig er það að ég er bara á bls. 136 eða e-ð en á að vera komin á 146. Svona aðeins rétt á eftir8|:D En ég ætla nú bara rétt að vona að ég sé að reikna dæmin rétt, þá er mér alveg sama að ég sé eftir á en ef svörin eru alveg út úr kú þá bara verð ég að fara hífa upp buxurnar, alveg í kameltoe!
Aaaaallavega, pabbi kemur og sækjir mig niðrí skóla og ég fer með honum út í búð.  Kem ég svo ekki bara heim í pönnsur og alles.  Það var nú ekki leiðinlegt svo kjúlli í matinn, gerist ekki betra:D


En hvað segið þið stelpur, hittingur eftir Pál Óskar helgina eða ? Það er komið svolítið síðan að seinasti hittingur var, þar sem við vorum allar, allan tímann :/:D Og heima hjá Vikkz er það ekki ?:P

En kveð að sinni,
Begguuuzz :O :D

P.S. Hver man ekki eftir slúður''fightinu'' mikla um matarboðin, alltaf gaman að rifja svona upp :haha: híhí :D ; 
                                                                                        

22.Janúar

  • Rosadas matarboðið var á föstudaginn, mjög gaman og allir skemmtu sér konunglega.
  • sumir taka upp annara siði með það að halda líka matarboð, alltígóðu með það 8-);D
  • rétthentra og örfhentra stríð ?
  • pillan í tísku eða?
  • Esterno/Cosmic að ganga of langt með slúðrið?
  • Sólveig búin að fá sér hund, víst voða sætur. Heitir Mollý:*
  • nýjir krakkar að koma í 8,9 og 10 bekk.
  • styttist í afmælið hennar Viktoriu , úff sko:D
  • banner á leiðinni eða?
  • frí í skólanum í dag ;D YEY
  • margir að syngja á samfés?
  • undankeppni Bolvíkinga á föst , og ísfirðinga líka held ég?
  • Desperate housewives , 3 sería .. LANGBEST, :P
  • Hólmavíkur ferð í Febrúar.

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 11:15:23 / viktoria

Á morgun segjir sá lati !

Loksins komst blog.central í lag ! var bara orðin eiginlega spennt að blogga ekki það að bloggin mín séu eitthvað spennandi ;) En allaveganna er Janúar mánuður bara buinn að vera fínn hjá mér Sólveig fór um áttunda? ef ég er að fara með rétt. Bjarni átti afmæli 24 og fékk þar af leiðandi bílprófið og svo var haldið afmæli í Sigurðarbúð og skundað á ball eftirá. Björk og Sigríður áttu afmæli 27 en Björk fékk þar af leiðandi ekki bílprófið sitt afþví að hun er löt eins og frænka sín og nennir ekki að taka það :D. Byrja bara á föstudaginn þar sem að ég pantaði mér kjól á myspace og hann kom þá og eg ekkert lítið ánægð með hann ! :) Svo fór ég á samfés söngvakeppnina sem var bara æði, nema hefði viljað sjá eitthverja út Bolungarvík í eitthverju sæti þarna ! Stelpurnar stóðu sig ekkert smá vel, en ballið var fínt hann Eyþór söng þar með Apollo ;). Eftir ballið kíktum við Gunni á rúnt með Hreiðari og kíktum þar af leiðandi inná Suðureyri. Man ekki alveg hvað ég gerði á Laugardaginn en vorum á rúntinum til klukkan hálf sjö á sunnudagsmorgun fórum þá dauðþreytt heim að sofa. Daginn eftir var ég svo ótrúlega heppin að ég vaknaði með enga smá sýkingu í báðum augum og var eiginlega bara orðin veik, fór heim í sturtu afþví ég ætlaði skoo að fara í afmæli til Hjöddu og fá mér að éta þar en neinei ég var orðin þá frekar slöpp að ég þurfti að neita kökum? þá er eitthvað að ! Síðan á ég svo æðinslegan kærasta að hann kom með vídjó, pepsi max og súkkulaði af því að ég var veik og svo daginn eftir var bolludagur og þá kom hann með bollur til mín ;* :D Fór samt í skólann í gær og það var alltí læ, fór síðan í ökuskólann um kvöldið með Sigríði og Ingólfi og þetta er bara alls ekkert svona leiðinlegt eins og allir segja :D En í morgun vaknaði ég og þá var ég komin aftur með sýkingu í augun og hálsbólgu,hausverk og eitthvað svoleiðis vesen.:( Ég get ekki beðið eftir morgundeginum þar sem að ég er að fara í hárLITUN! jább þið sem hafið séð rótina mína þurfið ekki að sjá hana lengur ! get skooo ekki beðið hárið mitt er viðbjóður ekki mönnum bjóðandi sko ! :D. Í gærkvöldi skelltum við okkur aðeins heim til Ingibjargar og Hönnu að spila smá og fórum við svo Kristján og Bjarni heim að horfa á Superbad sem er frekar steikt mynd en samt góð. Oog hvernig get ég gleymt Árshátið Grunnskóla Bolungarvíkur var á fimmtudaginn og fannst mér hún bara heppnast vel og kennaragrínið einnig :D. Síðan er Ívar bróðir fluttur heim sem er lovlí alltaf nóg að myndum til að horfa á og svo kom hann með myndlykilinn þannig allar stöðvar en auðvitað er langæðinslegast að fá hann heim!:D. Síðan styttist í það að litli bróðir minn nái fyrsta árinu, trúi því ekki að það sé að verða komið heilt ár síðan ég vaknaði í súðavík á bolludaginn hoppaði af gleði um sexleytið og vakti Sólveigu og tilkynnti henni að ég hafi eignast eitt stykki bróðir ;* :D. En talandi um Sólveigu þá var hún svo mikið æði að kaupa handa mér geðveikt flotta peysu? eða jú ég treysti henni alveg ég hef nú ekki séð peysuna en get ímyndað mér alveg að hún sé sjúk ! :D. En ætla að fara að hætta núna! þeir sem nenna að lesa þetta eiga hrós skilið og jáá það er ný manneskja vikunnar. -Viktoria

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 12:44:58 / fibblin

123456789

daaauða síða !
stelpur, við verðum allar að vera virkar í blogginu. þær sem eru ekki búnar að blogga lengi, hvernig væri að henda inn nokkrum línum ? og þær sem eiga myndir, hvernig væri að henda þeim inn ?


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 22:09:28 / fibblin

árshátíð '08

Minnum ykkur á árshátíðina hjá okkur á morgun klukkan 18;00 í íþróttahúsinu, kostar 700 inn fyrir 7.bekk og alla eldri en það ! Ballið byrjar 21;00, er ekki viss hvað kostar inn á það. Komið bara með nóg, þiggjum allar upphæðir ;)

stelpur fariði svo að blogga 8|

-Fibblin !


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 20:52:32 / fibblin

-

Heyrið ! Smá breytingar með Mammút.

Mammútskeppnin verður á sal skólans klukkan 17:00 á morgun. 200 kr fyrir 15 ára og yngri, annars 500.

annars viljum við óska honum Leó innilega til hamingju með afmælið ;)

með kveðju frá fibblunum. <3


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 15:02:20 / ebba

-

Hæhæ :D
Ákvað að blogga fyrst ég er ekkert búin að því á þessu ári omg ;o Líka í því tilefni að talvan mín er komin úr viðgerð :D (Já talva ekki tölva) Undanfarna daga er ég búin að vera í skólanum, læra mikið heima, tónlistarskólanum, kennaragrínsæfingum, íþróttahúsinu, Smára og fleira! Rústa Viktoríu og svona fleira skemmtilegt ;) Ef ég og Viktoría færum í slag, hvor myndi vinna ? Tók hana niður léttilega áðan ! R tú ðe úst.
Allavega, hátíðarnar hjá mér voru bara mjög fínar, Ólöf var hjá mér um áramótin og ég sakna hennar svooo, það er ekki eðlilegt :/ Svo var Steina auðvitað hér líka og ég sakna hennar líka, en ég er ekkert að örvænta því hún kemur í næstu viku með honum Sigga :) En Viktoría bað mig um að koma með afmælisóskir til hans Gunna boy sem er 16 ára í dag, til hamingju ;)
mynd..
En fyrst Berglind er í gömlu myndunum þá ætla ég að setja nokkrar skemmtilegar hingað :D



Þegar við fengum gömlu peysurnar fyrir næstum því ári :D Hawt


Ég að worka það á Æskónóttinni í fyrra :D


Breyttu ! Æskónóttin


Aftur, Ívar búinn að breytast ekkert smá !


Hotties :D


Ég og Berglind að gera dansinn góða (y)


Samfés á Hólmavík, hot eða ?


Gömlu fibblin á litlu jólunum í fyrra

Segi þetta gott, kommentið :D

-ebba

 


» 27 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 14:40:55 / berglind

Netið komið í lag :D

Hæ og hó :D

Loksins er netið komið í lag sem er bara heaven ! .. Var netlaus næstum því allan desember mánuðuinn svo kom það inn í 1 dag eða 2 og fór aftur ;/ En já var að prófa uppfæra aðeins útlitið þannig giiirls, ef ykkur líkar þetta ekki þá breytiði bara ;)

En já, fyrst ég er byrjuð þá var smá fibblahittingur hérna heima.  Horfðum á ienhverjar eldgamlar myndir af því við fundum ekki Bring It On :( :D Svo vorum við bara að tala saman og flippa í Smára :D Það var fjör (Y)
 
Ömm, laugardagurinn var ekki sá besti hjá mér en vona bara að næsta helgi verði aðeins betri.  Svo styttist óðum í árshátíðina og ég verð bara að segja að mig hlakki svolítið til, erum með kennaragrínið í ár og svona þannig þetta verður mega 8);)

Svo af því e´g hef ekkert meira að segja,,
Nokkrar ársgamlar myndir eða síðan 2006 :D


Ívar seeexy... :lol:

Þetta er fyrir næstum 2 árum.. Við gellurnar að taka Silvíu nótt.  Hvernig sannfærði Halldóra okkur að taka þetta aftur en við sungum ekki, því þá hefði þetta verið .. ehhmm :D haha
OMG! Sexy Sexur.. Ingibjörg brenndist þarna á hendinni eftir heita kakósúpu :D
Híhí :D 7.bekkingum fannst sko mega kúl að gera piz merki,, afar sérstök :D

En nenni ekki að grafa upp fleiri, veit fáar en margar minningar:D

Berglind

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 16:38:58 / viktoria

Já sæll!

Góðan dag gott fólk og gleðilegt nýtt ár ;*

Ég man ekki einu sinni hvenær ég bloggaði en það var pottþétt á seinasta ári!. Hátíðirnar voru hreint frábærar hjá mér og toppaði það þegar hún Sólveig mín kom vestur:D. ég fékk nokkuð mikið af jólagjöfum og er bara mjög ánægð með þær, áramótin voru ógleymanleg og sprengdi ég heilmikið þar (H). Ég gisti eitthverjar nætur útí súðavík þar sem við láum í matnum og gosinu allan sólahringinn :$. Nonni minn kom auðvitað heim yfir hátíðirnar og ekkert smá gaman að hafa kjeppz :P. °

Click for Full Size View

Ég,Nonni,Pabbi,Halldór,Mæja,Natalía og Svana á aðfangardag.

Svo er auðvitað skólinn byrjaður, byrjaði á föstudaginn klukkan 9, gekk nú ekkert alltof vel að sofna en það er seinnitíma vandamál! ég var svo bara að vinna á föstudagskvöldinu og mig minnir að Sólveig hafi gist hjá mér? og var líka að vinna á Laugardagskvöldið og fékk frí á sunnudagskvöldinu svo ég skellti mér með Silju,Hönnu,Ingibjörgu,Sólveigu og Emil á álfabrennuna sem ju ég því miður sá bara ekki :S kanski 4-6 spítur þarna sem logaði í? ogg já ég ætla nú ekki að gleyma því en hún Laufey Rún okkar kom í heimsókn frábært að hitta hana;*

Click for Full Size View

Svana,Amma,Halldór,Ívar,Nonni,Afi,Natalía og ég.

En núna ligg ég bara heima veik og óendanlega löt ! ég er það löt að ég er ekkert búin að fá mér að borða í dag vegna þess að ég nenni ekki að hafa til e-ð að borða þannig ég er að bíða þangað til að klukkan verði e-ð um sex leytið þá kemur Svana heim með mat til mín :lol: Jáá og ég er líka búin að vera e-ð á myspace-inu minu þannig endilega kíkið á það ! www.myspace.com/viktoriak4

-ViktoriaKristín


» 13 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 19:30:57 / ingibjörg

afmæli ;)

Ég vil óska þeim Guðbirni og Em:D til hamingju með afmælið ;)

 Em er orðin 15
og
Guðbjörn orðin 18 ára:D

Til hamningju strákar;**


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 156040